Evrópa böðuð bleiku Óvenju sterkur sólstormur skapaði í nótt umfangsmikla ljósasýningu á stórum hluta jarðarinnar. Himininn yfir Evrópu var víða bleikur á litinn og norðurljós sáust víða um heimsálfuna. Erlent 11.5.2024 07:57
Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Fjarreikistjarna sem James Webb-geimsjónaukinn hefur fylgst með gæti verið fyrsta bergreikistjarnan utan sólkerfisins okkar með lofthjúp sem menn finna. Engar líkur eru á að reikistjarnan gæti hýst líf, að minnsta kosti ekki í þeirri mynd sem við þekkjum það. Erlent 8.5.2024 15:54
Geimskoti Starliner var frestað í nótt Fyrirhuguðu geimskoti Starliner geimfarsins frá Boeing var frestað í nótt, tveimur tímum fyrir flugtak frá Canaveral höfða í Flórída. Erlent 7.5.2024 07:23
Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Verkfræðingum bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA tókst að komast í kringum bilun í Voyager 1-geimfarinu, víðförlasta og langlífasta geimfari sögunnar. Geimfarið sendir nú stöðuuppfærslur í fyrsta skipta frá því bilunin kom upp fyrir fimm mánuðum. Erlent 23. apríl 2024 14:56
Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna staðfestu á dögunum að áfram stæði til að senda þyrludróna til Títan, tungls Satúrnusar. Þyrludróni þessi er á stærð við lítinn bíl og kallast Drekafluga (Dragonfly) en hann á meðal annars að nota til að leita lífrænna sameinda og mögulegra ummerkja lífs. Erlent 18. apríl 2024 11:43
Langstærsta svartholið í Vetrarbrautinni okkar til þessa Tiltölulega nálægt svarthol sem stjörnufræðingar fundu fyrir tilviljun er það stærsta sem vitað er um í Vetrarbrautinni okkar. Massi svartholsins er á við 33 sólir sem er meira en helmingi stærra en það næststærsta. Erlent 16. apríl 2024 07:01
Sólmyrkvinn í beinni frá Ameríku Íslendingar munu mögulega getað séð deildarmyrkva á sólu í kvöld. Í Mexíkó, Bandaríkjunum og í Kanada mun fólk þó geta séð almyrkva en hann má einnig sjá á netinu. Erlent 8. apríl 2024 16:46
Hvetur fólk til að finna sólmyrkvagleraugun og kíkja út í kvöld Ef veður leyfir mun deildarmyrkvi á sólu sjást frá öllu landinu í kvöld. Almyrkvi verður í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada sem er töluvert sjónarspil. Innlent 8. apríl 2024 13:00
Deildarmyrkvi á sólu á morgun Á morgun, mánudaginn 8. apríl, mun sjást deildarmyrkvi á sólu frá öllu landinu, ef veður leyfir. Frá Reykjavík sést allur myrkvinn. Tunglið kemur til með að hylja um og yfir fjörutíu prósent sólarinnar frá Íslandi séð en í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada verður almyrkvi. Innlent 7. apríl 2024 09:34
Starliner á loks að bera geimfara Starfsmenn Boeing stefna að því að skjóta geimförum til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar um borð í geimfarinu Starliner í næsta mánuði. Þróun geimfarsins hefur reynst Boeing erfið og er mörgum árum á eftir áætlun. Erlent 5. apríl 2024 14:09
Fá 260 milljarða til að þróa tungljeppa Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær að þrjú fyrirtæki hefið veru valin til að þróa tungljeppa fyrir geimfara Artemis-áætlunarinnar. geimfarar eiga að nota þennan jeppa á tunglinu og til undirbúnings fyrir geimferðir til Mars. Erlent 4. apríl 2024 13:00
Norðmenn líta til dróna og geimferða Ríkisstjórn Noregs hefur tilkynnt ætlanir um að hætta eigi við að loka herstöðinni í Andøya, eins og til stóð. Þess í stað á að fara í umfangsmikla fjárfestingu þar og þróa herstöðina sérstaklega fyrir notkun langdrægra dróna í samstarfi við geimferðastöð sem verið er að setja á laggirnar þar. Erlent 3. apríl 2024 16:05
Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Vísindamenn kalla nú eftir því að ákveðin svæði á tunglinu verði friðlýst, til að tryggja að hægt verði að gera ákveðnar rannsóknir þar í framtíðinni. Margir ætla sér stóra hluti á tunglinu á næstu árum og áratugum. Erlent 25. mars 2024 08:13
Ljósadýrð á himni í kvöld Það viðrar vel til norðurljósa í kvöld að sögn vakthafanda hjá Veðurstofu Íslands og búist er við því að litrík og sterk norðurljós prýði festinguna í kvöld. Innlent 24. mars 2024 18:16
Þróa lestarkerfi fyrir tunglið Forsvarsmenn DARPA, rannsóknarstofnunar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna, hafa leitað til fyrirtækisins Northrop Grumman varðandi þróunarvinnu fyrir mögulegt lestarkerfi á tunglinu. Kerfi þetta ætti að vera hægt að nota til að flytja menn og birgðir milli staða á tunglinu í framtíðinni. Erlent 20. mars 2024 10:47
Þriðja flugferð Starship heppnaðist vel Starfsmenn SpaceX stefna að þriðja tilraunaskoti Starship geimfarsins í dag. Síðustu tvær tilraunir með þetta risastóra geimfar og eldflaug hafa endað með stórum sprengingum. Skotglugginn svokallaði opnast klukkan hálf eitt að íslenskum tíma, eða hálf átta að morgni að staðartíma. Erlent 14. mars 2024 10:30
Ný geimflaug sprakk í loft upp Fyrsta geimskot japanska fyrirtækisins Space One sprakk í loft upp við geimskot í nótt. Forsvarsmenn fyrirtækisins vonuðust til þess að Space One yrði fyrsta einkafyrirtæki í Japan til að koma gervihnetti á braut um jörðu en það misheppnaðist. Erlent 13. mars 2024 10:09
Þriðja ferð Starship mögulega í næstu viku Mögulegt er að starfsmenn SpaceX geri þriðju tilraun sína með geimskipið Starship í næstu viku. Fáist leyfi hjá þar til gerðum yfirvöldum og leyfi veður, stendur til að skjóta Starship á loft næsta fimmtudag. Erlent 7. mars 2024 16:13
Geimskot olli ljósasýningu yfir Mývatni Mikilfengleg ljósasýning sást á himnum yfir Mývatni í gærkvöldi. Þar var að öllum líkindum um að ræða fyrirbæri sem til var komið vegna mannaðs geimskots SpaceX frá Bandaríkjunum í gær. Innlent 5. mars 2024 14:52
Lentu á tunglinu í fyrsta sinn í hálfa öld Bandaríkjamenn lentu í gærkvöldi fyrsta farinu á tunglinu í rúma hálfa öld. Lendingarfarið Ódysseifur, sem þróað var af starfsmönnum fyrirtækisins Intuitive Machines, með stuðningi Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) lenti við suðurpól tunglsins en óljóst er hversu vel lendingin heppnaðist. Erlent 23. febrúar 2024 10:55
Rússar þrói kjarnavopn í geimnum Bandarísk yfirvöld óttast að Rússar muni vilja koma kjarnavopnum umhverfis sporbaug. Ætlunin yrði að beita þeim gegn gervihnöttum en tæknin er nú í þróun í Rússlandi. Erlent 14. febrúar 2024 23:39
Lenti á Mars í síðasta sinn Marsþyrlan Ingenuity hefur sungið sitt síðasta og mun ekki fljúga aftur. Þyrlan átti eingöngu að fljúga fimm sinnum og virka í einn mánuð en hún fór langt fram úr væntingum vísindamanna og hefur haldist á lofti í þrjú ár og flogið 72 ferðir. Erlent 28. janúar 2024 23:32
Marsþyrlan sem fór langt fram úr væntingum biluð Litla Marsþyrlan Ingenuity mun ekki fljúga aftur. Þyrlan var flutt til Mars um borð í vélmenninu Perseverance, sem lenti á plánetunni rauðu í febrúar 2021. Upprunalega átti Ingenuity eingöngu að fljúga fimm sinnum og virka í einn mánuð en markmið vísindamanna var að reyna að sanna að hægt væri að fljúga á Mars. Erlent 26. janúar 2024 10:48
Gífurlegt magn af ís undir yfirborði Mars Mögulegt er að finna megi gífurlegt magn af ís undir yfirborðinu á Mars. Talið er að ef ísinn yrði bræddur gæti hann þakið reikistjörnuna með 1,5 til 2,7 metra djúpu hafi. Erlent 19. janúar 2024 14:22